Ekki er hægt að takmarka félagsaðild að golfklúbbi á grundvelli aðstöðu. Golfklúbbar geta þó nýtt biðlista í GolfBox til að halda utan um þá einstaklinga sem bíða eftir fullum aðgangi að ákveðinni þjónustu eða réttindum vegna takmarkaðrar aðstöðu.
Hér má sjá hvernig hvernig hægt er að halda utan um biðlista.
Undir MEÐLIMIR -> Biðlistar er hægt að bæta við nýjum lista. Smelltu á "Bæta við nýju" til að stofna nýjan lista eða smelltu á (1) > til að opna þá lista sem búið er að stofna.
Smelltu á (2) "Stofna nýjan meðlim" til að bæta einstakling við á biðlistann.
Sláðu inn kennitölu (3) og smelltu á "leita" til að sækja upplýsingar um meðlim úr þjóðskrá og stofna á biðlista.
Réttindi meðlima til að bóka sig á rástíma
Með stillingum réttinda í GolfBox hafa stjórnendur golfklúbba möguleika á að stjórna aðgengi meðlima að rástímakerfi. Þar er hægt að skilgreina hvort meðlimur hafi heimild til að bóka rástíma á heimavelli eða öðrum golfvöllum eða hvort aðgangur að vellinum sé takmarkaður.
Undir notandasvæði meðlima má sjá stillingar sem hægt er að nota ef takmarka á heimild kylfinga.
(1) Golfsambands réttindi = Gefur meðlim heimild til að bóka sig á rástíma á öllum öðrum golfvöllum fyrir utan heimavöll.
(2) Staðbundinn réttindi = Gefur meðlim heimild til að bóka sig á rástíma á heimavelli.
Athugið að hægt er að stjórna takmörkuðu aðgengi að rástímabókun á heimavelli í reglum undir "Aðföngum".