Til að leiðrétta handvirkt forgjöf hjá kylfing verður hann að eiga minnst 1 forgjafarhring í kerfinu.
Lausn ef kylfingur á engan forgjafarhring í GolfBox: Þá getur stjórnandi búið til Gervi-forgjafarhring á kylfinginn og skráir þá bara á hann eitthvað skor s.d. nettó skramba og vistar. Skorið skiptir í raun ekki máli því þetta er bara forgjafarhringur sem leyfir stjórnanda síðan að gera handvirka forgjafarleiðréttingu.
En ef kylfingur á forgjafarhring: Sláðu inn meðlimanúmer eða leitaðu að meðlim undir MEÐLIMIR - TILKYNNA SKOR - HANDVIRK BREYTING

Leiðréttu forgjöfina í það sem forgjafarnefnd hefur ákveðið og smelltu á VISTA

Athugið! Það mun taka nokkrar mínútur fyrir leiðréttinguna að vistast og forgjafarkerfið að endurreikna nýja forgjöf.

Leiðréttingin kemur inn í forgjafarútreikning sem "Framúrskarandi skor" í nýju forgjafarkerfi.
