Golftímabilið er 15. apríl til 15. október ár hvert og er sá tími sem gild skor geta gilt til forgjafarútreiknings. En skor geta aldrei orðið gild til forgjafarútreiknings nema að völlurinn uppfylli þau skilyrði sem til hans eru gerðar til að leyfa leik til forgjafar.
Sérstakar aðstæður geta komið í veg fyrir að völlurinn uppfylli forgjafarskilyrði sem dæmi að leikið sé inn á vetrarflatir, völlurinn styttri en skorkortið segir til um, glompur óleikhæfar, karginn varla byrjaður að vaxa o.s.frv.
Í ljósi framangreinds telur forgjafarnefnd rétt að benda á að áðurnefnt tímbil er ekki heilagt og verður upphaf þess og lok ávallt að skoðast með tilliti til aðstæðna hverju sinni. Og það er á hendi golfklúbba að meta hvenær og hvort golfvöllurinn sé hæfur til forgjafarleiks.
Í GolfBox kerfinu er aðgerð sem stjórnendur geta notað til að loka vellinum fyrir forgjafarskráningu sé hann ekki tilbúinn. Undir Aðföng --> Vellir --> Vallarútgáfa.
Til að loka á forgjafarskráningu takið hakið úr reitnum "Breytingar á forgjöf:" og vistið.
