Nú er hægt nota skjá tengdan tölvu eða spjaldtölvu til að láta kylfinga staðfest rástíma með QR kóða við komuna í golfklúbbinn. Þessi valmöguleiki er kominn í tengslum við nýja stafræna félagakortið.
Það eina sem birtist á skjánum er QR kóði sem er skannaður með GolfBox appinu. Við það verður athugað hvort kylfingur sé skráður á rástíma og hafi hann greitt eða er félagsmaður í golfklúbbnum þá koma upp skilaboða að rástíminn hafi verið staðfestur.
Ef viðkomandi kylfingur á eftir að greiða fær hann upp athugasemd vegna þessa og ætti að snúa sér til afgreiðslu til staðfestingar og mögulegrar greiðslu fyrir rástímann.
Uppsetning fyrir golfklúbba
Undir aðföngum þar að byrja á því að smella á "Uppsetning á snertiskjá"
Og smella svo "STILLINGAR" til að setja upp.
Og smella svo neðst á "BÆTA VIÐ NÝJU" til að setja upp.
Veldu "Staðfesta mætingu", Bætu við völlum (aðföngum) þar sem staðfesta á mætingu
og smelltu að lokum á "VISTA".
Nú er hægt að opna meðfylgjandi slóð í vafra sem sýnir QR kóða til staðfestingar á mætingu.
Athugið að láta vafrann fylla út í skjáinn þannig að slóðin sé ekki sýnileg og sjá til þess að enginn stilling í tölvu/skjá slökkvi á birtingu QR kóða.