Skyggnusýning er kynning á móti sem er aðlöguð til að passa á stóra skjái á borð við sjónvörp, upplýsingaskjái, myndvarpa o.s.frv. Skyggnukynning er oftast notuð til að sýna skortöflu en er einnig hægt að nota til að sýna ráslista, skjámyndir og aðrar upplýsingar.
Hver og einn klúbbur getur sett upp sínar skyggnusýningar og getur haft eins margar skyggnusýningar og hann vill.
Byrjaðu á því að velja SKYGGNUSÝNING á forsíðunni.

Uppsetning á skyggnusýningu
Allar skyggnusýningar sem klúbburinn þinn hefur gert sást á yfirlitinu hægra megin.
Til að setja upp nýja kynningu skaltu velja “Búa til skyggnusýningu” sem er efst vinstra megin.

Skref 1
- Skrifaðu heiti skyggnusýningarinnar, t.d. heiti mótsins
- Veldu tungumálið (sjálfkrafa tungumálið sem þú ert með stillt á)
- Veldu ÁFRAM

Skref 2
Nú þarftu að búa til mismunandi skyggnur í sýninguna. Það er myndin sem sést í kynningunni. Ef mótið er bara með einum flokki getur verið að þú þurfir bara að búa til eina skyggnu en ef það er fleiri en einn flokkur í móti þarftu að búa til skyggnur fyrir hvern flokk.
- Veldu BÆTA VIÐ

Upplýsingar á skyggnu
Það eru þrjú svæði sem þarf að klára á hverri skyggnu:
- Almennt
- Frumgögn
- Umskipti
- Almennt
- “Heiti skyggnu”: Hér þarf að skrifa nafnið sem birtist efst á skyggnunni.
- “Þema skyggun”: Sem stendur er bara hægt að velja “Default” þema.
- “Bakgrunnsmynd”: Hér er hægt að setja inn mynd sem verður í bakgrunn á glærunni eða velja “default” myndina. Ef þú hefur valið myndir áður, birtast þær einnig í fellistikunni.
- “Gerð skyggnu”: Veldu gerðina sem á að sjást, eftir hvernig mótið er, höggleikur, holukeppni eða Ryder Bikars fyrirkomulag. Það er einnig hægt að velja “Skyggna með upplýsingum” þar sem þú getur skrifað þinn eigin texta eða “Auð skyggna” þar sem hægt er að setja mynd eða hafa tóma til að gefa í skyn að skyggnusýningin sé að fara yfir í annan flokk.
- “Undirtitill”: Valkvæður texti.
- Frumgögn
- “Mót”: Hér velur þú mótið sem á að sýna stöðuna úr.
- “Flokkur”: Þetta ákveður hvaða flokkur á að sjást á skyggnunni.
- “Svið”: Velur hversu margir leikmenn úr flokknum sjást á skyggnunni, t.d. ef þú ert með 100 manna mót en vilt bara sýna efstu 10 sætin, velur þú sviðið í 0-10 leikmenn. Þetta er gert með því að draga stikuna til.
- Umskipti
- “Gerð umskipta”: Velur hvernig síðan breytist.
- “Bil á milli umskipta”: Veldu hér hversu lengi hver skyggna á að vera áður en skipt er yfir á næstu.
- Kláraðu með því að velja VISTA.

Nú hefur þú gert eina skyggnu fyrir skyggnusýninguna þína. Ef þú þarft að gera nýja skyggnu, t.d. fyrir annan flokk, getur þú valið BÆTA VIÐ. Ef þú þarft ekki að búa til fleiri skyggnur, veldu VISTA.
Þegar þú hefur vistað skyggnusýninguna þína ferðu aftur á forsíðu skyggnusýninga þar sem þú sérð þessa sem þú varst að gera og hlekkinn á hana. Þú þarft að nota hlekkinn til að sýna hana þar sem þú vilt.

Skyggnusýningin lítur þá svona út þangað til skorskráning hefst.

Um leið og skorskráning hefst mun skyggnusýningin uppfærast sjálfkrafa.

Athugið að ef þú hefur valið STÖÐUTAFLA þarf að opna fyrir skorskráningu í mótinu áður en eitthvað er birt af skyggnusýningunni.
Breyta skyggnusýningu
Ef þú vilt breyta skyggnusýningu sem er nú þegar til skaltu smella á litla þríhyrninginn við sýninguna og velja BREYTA.

Ef þú vilt breyta heiti skyggnusýningarinnar eða tungumálinu velur þú það undir SKYGGNUSÝNING. Ef þú vilt eyða eða bæta við skyggnum veldu SKYGGNUR.

Í dæminu hér fyrir neðan hefur tveimur skyggnum verið bætt við, “Skyggna með upplýsingum” með frjálsum texta og “Skor á holu” sem hefur verið sett upp fyrir B flokk í sama móti. Eftir að skyggnunum hefur verið bætt við mun upplýsingaskyggnan færst sem fyrsta skyggnan í röðinni með því að smella á litla punkta og draga þær til.

Heildar skyggnusýningin mun þá líta svona út:



Ef þú vilt eyða skyggnusýningu getur þú gert það með því að smella á bláa þríhyrninginn við skyggnusýninguna.
