Nýja stjórnendaviðmótið fyrir golfklúbba í GSÍ appinu inniheldur fjóra mismunandi valmyndaflokka. Valmyndin er aðgengileg undir Klúbbur > Upplýsingar > App-ið
- Club Info (Klúbbaupplýsingar)
- Course Status (Staða vallar)
- News (Fréttir)
- Banner/Ads (Auglýsingar)
Skref 1:
Til að byrja með þarf að setja upp upplýsingar "Um golfklúbbinn". Þegar þeim hluta hefur verið lokið verða hinir þrír valmyndaflokkarnir virkir.
Í upplýsingum um golfklúbbinn þarf að skrá eftirfarandi upplýsingar og einnig er hægt að hlaða upp mynd sem birtist efst á svæði golfklúbbsins í appinu:
Skref 2:
Þegar búið er að skrá upplýsingar um golfklúbbiinn verða hinir þrír valmyndaflokkarnir virkir. Þá getur þú bætt við Fréttum, stöðu vallar og auglýsingu á svæði klúbbsins í appinu. Nánari útskýringar á valmyndunum má sjá hér fyrir neðan.
Staða vallar:
Hér getur þú sett inn núverandi stöðu vallarins. Við bjóðum upp á þrjár sjálfgefnar stillingar og síðan getur þú bætt við stuttri textalýsingu sem útskýrir nánar um stöðu vallarins.
Fréttir:
Í fréttahlutanum getur þú einfaldlega smellt á "Nýtt" til að búa til frétt. Þegar þú hefur smellt á "Nýtt" getur þú sett upp þá frétt sem þú vilt, eins og sést á myndinni hér að neðan.
Þú þarft að bæta við fyrirsögn, hlekk sem kylfingar verða sendir á þegar þeir smella á fréttina, og velja breidd fréttarinnar. Þú getur einnig valið hvort fréttin eigi aðeins að vera aðgengileg fyrir meðlimi eða fyrir alla kylfinga sem skoða klúbbasíðuna í appinu. Að lokum skrifar þú fréttatextann og bætir við mynd.
Auglýsingar:
Í þessum hluta getur þú bætt við borðum eða auglýsingum neðst á svæði klúbbsins í appinu. Þegar þú smellir á Borðar/Auglýsingar og síðan á "Nýtt" þá færðu þá valkosti sem sjá má á myndinni hér að neðan.
Hér getur þú sett inn vefslóð fyrir borðann og stillt „vægið“, það er hversu oft hann birtist í appinu. Þú getur bætt við fleiri en einum borða ef þú vilt. Að lokum hleður þú upp myndinni sem þú vilt nota fyrir borðann.