Ef þú ert kylfingur utan golfklúbbs bjóða nokkrir golfklúbbar upp á að þú getir skráð þig á rástíma og greitt fyrir án þess að vera meðlimur í golfklúbbi innan GSÍ.
Smelltu á þann tíma dags sem þú vilt bóka þig á rástíma.
Fylltu síðan inn upplýsingar: nafn, netfang og símanúmer. Ef þú vilt skrá forgjöf er hægt að breyta því, annars leikur þú einfaldlega án forgjafar.
Ef golfklúbburinn hefur virkjað netgreiðslur opnast greiðslusíða þar sem þú getur greitt fyrir rástímann. Ef netgreiðslur eru ekki virkar geturðu einfaldlega staðfest bókunina og gengið frá greiðslu við mætingu.
Þegar þú hefur greitt eða staðfest bókunina færðu tölvupóst með staðfestingu og innskráningarupplýsingum. Vinsamlegast kynntu þér vel rástímareglur golfklúbbsins og hvað stendur í tölvupóstinum. Ef spurningar vakna getur golfklúbburinn einnig veitt frekari upplýsingar.
Að því loknu þarftu einfaldlega að mæta og fara út á völl og leika golf.
Ath. ef þú hefur ekki greitt við bókun þarftu að gera það á staðnum!