Auglýsingaborðar á síðu golfklúbbsins í appinu ættu að vera 800–1200 px á breidd. Athugið að þeir birtast frekar smáir í appinu og því er ekki pláss fyrir langan texta.
Hafið samband við samstarfsraðila ykkar og biðjið þá um að senda .png mynd í hlutfallinu 6:1 eða 5:1.
Til dæmis:
- 1200 × 200 px
- 800 × 160 px
Hægt er að nota myndvinnsluforrit eins og Canva til að búa sjálf til auglýsingar.