Hægt er að senda tilkynningar (push notifications) á kylfinga í Mitt Golf. Þær er hægt að senda annaðhvort sem skilaboð eða sem tölvupóst úr GolfBox. Þetta er eingöngu hægt að gera með stjórnendaaðgangi.
Senda skilaboð
Til að senda skilaboð sem tilkynningu í GolfBox þarftu að fara í:
Klúbbur → Skilaboð → Neðst á síðunni smellir þú á "Bæta við nýju"
Þá opnast gluggi eins og sýnt er á myndinni hér fyrir neðan. Þar velur þú hverjir eiga að fá skilaboðin. Hægt er að bæta við bæði einstökum kylfingum og hópum eftir því hverjum þú vilt senda skilaboðin.
Ef þú vilt að skilaboðin birtist sem tilkynning í Mitt Golf þarftu einfaldlega að haka við viðeigandi reit, eins og sést á myndinni.
Viðtakendur
Mikilvægt er að íhuga vandlega hverjir eiga að fá push-tilkynningar í appinu þannig að félagsmenn verði ekki fyrir óþarfa truflun. Öll vinnsla gagna er samkvæmt persónuverndarstefnu golfklúbbsins og þarf því að uppfylla þær kröfur.
Til þess þarf að kylfingur sjái skilaboðin þarf kylfingurinn að hafa Mitt Golf appið í símanum og leyfa tilkynningar frá appinu. Tilkynningin birtist bæði sem push-tilkynning í símanum og undir tilkynningar í appinu.
Senda fjölpóst
Til að senda tölvupóst sem tilkynningu í Mitt Golf appið ferðu í:
Skýrslur → Fjölpóstur
Smelltu þar á Bæta við nýju neðst á síðunni.
Þegar þú hefur valið efni (subject), valið viðtakendur og skrifað póstinn í ritlinum kemur þú á fjórða og síðasta skrefið: Loka.
Þar þarftu að haka við „Senda líka tilkynningu í GSÍ app“ eins og sýnt er á myndinni hér fyrir neðan.
Þá munu kylfingar fá tilkynningu í appið á sama tíma og þegar skilaboð eru send samkvæmt leiðbeiningunum hér að ofan.