Players 1st er annars vegar gagnagreiningartól fyrir rástímaskráningu og meðlimi hjá golfklúbbum á Íslandi. Að auki er hægt að kaupa sérstakan aðgang að þjónustukönnunum fyrir kylfinga. Þjónustukannanir eru hannaðar til að hjálpa golfklúbbum að halda í eða sækja nýja meðlimi ásamt því að auka tekjur klúbbsins. Svörum er þá safnað í gegnum sérhannaðar kannanir sem eru eingöngu fyrir golfíþróttina. Þessar niðurstöður birtast í mismunandi skýrsluformum á mælaborðum. Hvernig virka kannanirnar?
✅ Sérsniðnar kannanir eftir löndum sem verða þróaðar í samstarfi við golfsambandið.
✅ Staðlað spurningasett sem inniheldur spurningar sem tryggja samanburð við aðra golfklúbba.
✅ Golfklúbbar geta bætt við sérsniðnum spurningum til að laga könnunina að eigin þörfum.
Hverjir standa að Players 1st?
Players 1st var stofnað af kylfingum fyrir kylfinga. Með ástríðu fyrir golfi og sérfræðiþekkingu í stjórnun viðskiptaupplifunar var markmið okkar að styðja golfklúbba í að bæta upplifun meðlima. Players 1st er samfélag þar sem golfklúbbar og golfsambönd deila hugmyndum og innsýn með hver öðrum.
Players 1st var upprunalega þróað í samstarfi við Danska Golfsambandið. Í kjölfarið ákváðu golfsambönd á Norðurlöndunum að taka höndum saman og búa til eina lausn þar sem þessar þjóðir geta svo borið saman gögn.