Skref fyrir skref hjálp til að stofna og sérsníða aðganginn þinn.
Skref 1: Innskráning
Sem stjórnandi golfklúbbs hefurðu líklega fengið tölvupóst með boð frá golfklúbbnum til að stofna þinn eigin reikning.
✅ Skoðaðu pósthólfið þitt – Þú munt fá tölvupóst með skráningarhlekki.
✅ Smelltu á "Sign up" hnappinn í póstinum.
✅ Fylltu út nauðsynlegar upplýsingar í skráningarforminu s.d. nafn, netfang og lykilorð.
✅ Aðgangurinn þinn er nú tilbúinn!
Til að skrá þig aftur inn ferðu inn á aðalsíðuna.
Athugið: Tengillinn í tölvupóstinum er aðeins gildur í 30 daga eða þar til aðgangurinn hefur verið stofnaður. Ef hann rennur út sendu tölvupóst á arnar@golf.is til að fá nýtt boð.
Skref 2: Kláraðu prófílinn þinn
Eftir að þú hefur virkjað aðganginn þinn skaltu:
1️⃣ Skráðu þig inn á app.players1st.sport með netfangi og lykilorði.
2️⃣ Opnaðu valmyndina efst í hægra horninu á skjánum.
3️⃣ Veldu „Account & Subscriptions“ úr valmyndinni.
4️⃣ Fylltu út allar nauðsynlegar upplýsingar sem dæmi: Reikningsheiti, Land og Tímabelti.
5️⃣ Skráðu inn nauðsynlegar upplýsingar um golfklúbbinn s.d. tegund vallar eða aðstöðu.
6️⃣ Uppfærðu logo klúbbsins sé þess óskað.
7️⃣ Smelltu á „Save“ til að uppfæra prófílinn.
Skref 3: Stjórnaðu reikningnum þínum
Í stillingum reikningsins geturðu stjórnað ýmsum þáttum:
🔹 Stillingar liðsins – Bættu við eða fjarlægðu notendur í teymið þitt.
🔹 Áskriftir og greiðslur – Golfsambandið greiðir fyrir alla notkun sem snýr að rástíma- og meðlimagreiningu.
Ef þú þarft frekari aðstoð eða spurningar vakna hafðu samband við arnar@golf.is
Gangi þér vel á Players 1st! ⛳